15.4.2008 | 15:35
HÉR & NÚ! í Tampere
LEIKSÝNINGIN Hér og nú hefur verið valin til þátttöku á leiklistarhátíðinni í Tampere í Finnlandi sem haldin verður 4.-10. ágúst nk.
HÉR & NÚ er nýr íslenskur nútímasöngleikur, eins konar revía, sem sýndur var á Litla sviði Borgarleikhússins í uppsetningu Sokkabandsins. Verkið samanstendur af uppistandi, stuttum leikþáttum, eintölum, leikjum, dansnúmerum og frumsömdum og stórskemmtilegum sönglögum. Efniviðurinn er tekinn úr heimi glanstímarita eins og Séð & Heyrt, Hér & Nú og Vikunni sem og spjallþátta, bloggsíðna og annarra fjölmiðla sem hafa það að leiðarljósi að skemmta okkur íslendingum með dramatískum lífsreynslusögum og fréttum af fræga fólkinu.

Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Bloggar, Ferðalög, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.