Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Menningarlandið 2009

Menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar boðar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k.

Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna.  Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar?  

Menningarráð landsbyggðarinnar  kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.

Frá árinu 2001 hafa menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er tengt saman með menningarsamningum um markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.

Í íslensku samfélagi hafa að undanförnu átt sér stað miklar breytingar. Það kallar á viðbrögð – ekki síst á sviði menningar – og því tímabært að meta reynsluna af menningarsamningunum og huga að nýrri sókn í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar.
Af því tilefni boða menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k.
 
Á Markaðstorgi menningarinnar munu menningarráðin á landsbyggðinni kynna starfsemi sína og bjóða upp á nokkur atriði sem henni tengjast.
 
Fjallað um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna?   Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi á Austurlandi og Dr. Guðrún Helgadóttir prófessor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum í Hjaltadal verða frummælendur og þátttakendur í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum frá iðnaðar- og menntamálaráðuneyti.  
 
Meðal margra góðra gesta sem flytja erindi á ráðstefnunni má nefna Jón Jónsson þjóðfræðing og ferðaþjónustubónda, á Kirkjubóli á Ströndum, Dögg Mósesdóttur kvikmyndagerðarkonu, Viðar Hreinsson bókmenntafræðing, Hjálmar Sveinsson heimspeking og þáttargerðarmann á Rás 1, Sigríði Sigurjónsdóttur prófessor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóli Íslands, Þór Sigfússon hagfræðing og forstjóra, Elísabetu Indru Ragnarsdóttur þáttargerðarmann á Rás 1, Svanhildi Konráðsdóttur, formann Ferðamálaráðs og sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra hjá ReykjavíkurAkademíunni og Brynhildi Guðjónsdóttur leikkonu og leikskáld.
 
Allir þeir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi og ferðamálum á Íslandi eru hvattir til að mæta á ráðstefnuna enda verða þær umræður sem þar fara fram grundvöllur að frekara samstarfi ríkis og sveitarfélaga um menningu og menningartengda ferðaþjónustu.
Ráðstefnan verður sett klukkan 11,00 mánudaginn 11. og henni slitið klukkan 17,00 þriðjudaginn 12. maí.  Dagskráin verður kynnt nánar síðar.
 
Ráðstefnugjald er 9000 kr. Innifalið er hádegisverður, kvöldverður (án drykkja), kaffiveitingar og kynnisferð.
 
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu. Hótel Stykkishólmur býður upp á sérstakt  tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti. Gisting í eina nótt fyrir manninn kostar 5000 kr. í tveggja manna herbergi og 6000 kr. í eins manns herbergi.
Ráðstefnan verður sett klukkan 11,00 mánudaginn 11. og henni slitið klukkan 17,00 þriðjudaginn 12. maí.  
 
 
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og um skráningu er að finna á
www.ferdamalastofa.is <http://www.ferdamalastofa.is> .
Vinsamlega takið þessa daga frá.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband