Bandalag atvinnuleikhópa - SL

 

 

 

SJÁLFSTÆÐU LEIKHÚSIN

Bandalag atvinnuleikhópa

– stofnað 1985 –

Stefnuyfirlýsing

 

1.  Sjálfstæðu leikhúsin (SL) er vettvangur hagsmunagæslu og samhæfingar sjálfstæðra atvinnuleikhópa á Íslandi. SL er í forsvari fyrir atvinnuleikhópana gagnvart stjórnvöldum og vinnur að bættu starfsumhverfi þeirra og auknum sýnileika. SL stendur vörð um hagsmuni atvinnuleikhópanna svo þeir geti starfað frjálsir, óháðir og á eigin forsendum.

2.  SL styður síbreytilega starfsemi atvinnuleikhópanna svo þeir geti svarað kalli samtímans með því að bregðast skjótt við samfélagslegum áskorunum og verið sívirk og frjó kvika í listalífinu. Til að geta vænst listrænnar þróunar þarf að búa sviðslistastarfsemi skilyrði til þroska sem byggja á víðtækum rannsóknum og tilraunum á formi sviðslistanna. Frelsi og sköpunarmáttur sviðslista felst í fjárhagslegu sjálfstæði starfseminnar sem er undirstaða þess að atvinnuleikhóparnir geti starfað af samfélagslegri ábyrgð, framsýni og listrænum metnaði.

3.  SL vill stuðla að öflugu alþjóðlegu tengslaneti með virkri aðild að alþjóðasamtökum tengdum sviðslistum, bæði norrænum, evrópskum og á heimsvísu. Þannig byggir SL loftbrú fyrir sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópa á Íslandi til miðlunar og þróunar í alþjóðasamfélaginu. Þátttaka SL á alþjóðlegum vettvangi skapar raunhæfan grundvöll fyrir áframhaldandi útrás og innrás atvinnufólks í sviðslistum í framtíðinni.

4.  Markmið SL er að á Íslandi geti þrifist fjölbreytt og skapandi samfélag þar sem hagsmunum þeirra atvinnuleikhópa, skipuðum menntuðum sviðslistamönnum sem kjósa að starfa sjálfstætt, sé gætt. SL væntir þess að starf það sem unnið er meðal atvinnuleikhópanna verði allri sviðslistastarfsemi í landinu hvati og aflgjafi.

 

Stjórn SL 2007-2008

Aino Freyja Järvelä, formaður: aino(hjá)leikhopar.is
Hera Ólafsdóttir, varaformaður: herao(hjá)simnet.is
Arndís Egilsdóttir, ritari: arndisegilsdottir(hjá)hotmail.com
Eggert Kaaber, gjaldkeri: eggert(hjá)centrum.is

María Heba Þorkelsdóttir, meðstjórnandi: mariaheba(hjá)visir.is

 

Gunnar I. Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri gunnar(hjá)leikhopar.is

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Bandalag sjálfstæðra leikhúsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband