Færsluflokkur: Lífstíll
1.2.2008 | 17:58
Styrkir til leiklistarstarfsemi 2008 – atvinnuleikhópar
Menntamálaráðherra hefur að tillögu leiklistarráðs ákveðið verkefnastyrki til starfsemi atvinnuleikhópa árið 2008 sem hér segir:
Fígúra ehf. / Hildur M. Jónsdóttir o.fl. 1,800 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Klókur ertu Einar Áskell.
Kristján Ingimarsson o.fl. 1,800 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Skepna.
UglyDuck Productions / Steinunn Ketilsdóttir o.fl. 800 þús. kr. vegna verkefnisins 108 Prototype.
Sælugerðin / Álfrún Helga Örnólfsdóttir o.fl. 2,400 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Húmanímal.
Ímógýn / Þóra Karítas Árnadóttir o.fl. 1,200 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Ég heiti Rachel Corrie.
Lab Loki / Rúnar Guðbrandsson o.fl. 7,500 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Steinar í djúpinu.
Einleikhúsið / Sigrún Sól Ólafsdóttir o.fl. 1,700 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Upp á fjall.
Opið út /Charlotte Böving o.fl. 4,600 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Mamma.
Panic Productions / Gréta María Bergsdóttir o.fl. 3,400 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Professional amateurs.
Söguleikhúsið / Kjartan Ragnarsson o.fl. 3,000 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Brák.
Shalala / Erna Ómarsdóttir o.fl. 2,500 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu The talking tree.
Odd lamb couple ehf / Margrét Vilhjálmsdóttir o.fl. 5,500 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu L.
Evudætur / Ólöf Nordal o.fl. 3,000 þús. kr. vegna uppsetningar á verkinu Eva.
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör, 20 millj. kr. samkvæmt samstarfssamningi.
Á fjárlögum 2008 eru alls 66.1 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 6 millj. kr. til Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis og 20 millj. kr. fara til Hafnarfjarðarleikhússins skv. samningi. Alls bárust 64 umsóknir um verkefnastyrki frá 53 aðilum og ein umsókn um samstarfssamning. Leiklistarráð gerir tillögu um að 13 aðilar fái verkefnastyrki upp á alls 39,2 millj. kr. Þá gerði ráðið tillögu til stjórnar listamannalauna um 100 mánaðarlaun í starfstyrki til alls 10 hópa, þar af fékk 1 hópur eingöngu starfslaun.
Leiklistarráð er skipað Orra Haukssyni, Jórunni Sigurðardóttur og Magnúsi Þór Þorbergssyni.
Lífstíll | Breytt 13.2.2008 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2008 | 18:05
Úthlutun Listasjóðs til atvinnuleikhópa
Við óskum aðildarfélögum SL til hamingju um leið og viðbjóðum nýa hópa velkomna til starfa.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 14:13
,,Happadrættisvinningurinn"
Lífstíll | Breytt 28.1.2008 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2008 | 11:47
Úthlutun Reykjavíkurborgar
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur úthlutaði styrkjum til verkefna- og liststarfsemi síðastliðinn föstudag. Er þetta einn af þeim sjóðum sem Sjálfstæðir atvinnuleikhópar sækja í fyrir verkefni sín. Í ár hlutu einungis fjórir atvinnuleikhópar og einstaklingar innan sjálfstæða geirans fjárveitingu úr sjóðnum. Eru það töluvert færri en hlutu fjárveitingu í fyrra.
Á föstudaginn hlaut danshópurinn Panic Productions 800 þúsund króna fjárveitingu. Sömu upphæð hlaut Ívar Örn Sverrisson sem hyggst setja Óþelló á svið. Draumasmiðjan fékk 500 þúsund krónur og dansararnir Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir hlutu 400 þúsund krónur. Samans gerir það tvær og hálfa milljón króna. Árið 2007 hlutu sjö atvinnuleikhópar fjárveitingu úr sjóðnum að samanlagðri upphæðinni 4.1 milljón króna. Er því fjárveitingin í ár töluvert lægri.
Reykjavíkurborg gerir að jafnaði samstarfssamninga við sjálfstæða atvinnuleikhópa til þriggja ára í senn og voru slíkir samningar gerðir í fyrra og eru því ekki lausir fyrr en 2009. Fimm atvinnuleikhópar eru nú á slíkum samstarfssamningi.
Það var ánægjulegt að sjá að Lókal, alþjóðleg leiklistarhátíð hlaut fjárveitingu að upphæðinni 2 milljónir króna. Hátíðin verður haldin í fyrsta sinn í mars á þessu ári. Lókal er nýmæli á sviði leiklistar í borginni og mun án efa vera þakklát viðbót við þá miklu leiklistarstarfsemi sem fyrir er í landinu. SL mun vinna í samstarfi við Lókal í framtíðinni og stefnt er að því að nýtt og endurbætt Tjarnarbíó verði miðstöð hátíðarinnar þegar húsið opnar eftir framkvæmdir í mars 2009.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2008 | 01:11
Hátíðarþokan á undanhaldi
hátíðarþokunni út í hafsauga. Það eru mörg verkefni sem bíða og
því ekki seinna vænna en að bretta upp ermar og hefjast handa.
Meira síðar.....
Lífstíll | Breytt 8.1.2008 kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2007 | 04:14
Gleðileg jól
Sjálfstæðu leikhúsin óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Við þökkum fyrir frábærar viðtökur á árinu sem er að líða og hlökkum til að sjá ykkur sem flest í leikhúsinu á næsta ári.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 21:32
Senn koma áramót...
Árið hefur verið viðburðaríkt og of langt að telja allt upp hér. Það sem ber hæst er að framkvæmdir munu hefjast á Tjarnarbíó á næsta ári ásamt 9 milljón króna hækkun á liðnum Starfsemi atvinnuleikhópa. Það er von á rekstrarstyrk til skrifstofu SL frá fjárlaganefnd sem mun tryggja rekstur hennar til framtíðar. Aðsókn sjálfstæðra atvinnuleikhópa jókst á síðasta leikári þrátt fyrir met aðsókn árið áður en samanlagt er þessi aukning um 34% Vefur SL hefur líka fengið aukna aðsókn og er svo komið að um 4500 heimsóknir eru í viku hverri. Samstarfssamningur allra leikhúsa við Morgunblaðið hefur verið gríðarleg lyftistöng fyrir aðildarfélög SL og er ánægjulegt að sjá hversu margir hafa nýtt sér þennan sjáanleika án mikils tilkostnaðar. SL var samþykkt sem aðili að Leiklistarsambandi Íslands. Manifestó SL var sett á blað.
Það er af mörgu að taka en þetta var það fyrsta sem kemur upp í hugann. Það er mikið sem hefur unnist en margt er þó ógert eða óklárað sem þarf að fara að huga að. Það er því nauðsynlegt að halda áfram á réttri braut.Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 12:27
Tíu jólasýningar
Nú fer að líða að aðventunni og þá vakan margar jólasýningar atvinnuleikhópanna af dvala og fara á stjá. Nokkrar nýjar líta dagsins ljós og óhætt er að fullyrða að framboðið er mikið þetta árið. Alls eru 10 jólasýningar í boði þetta árið á vegum þeirra.
Atvinnuleikhópar eru duglegir að bjóða öllum landsmönnum upp á atvinnuleiklist eins og undanfarin ár. Jólaleikritin eru þar engin undantekning. Kómedíuleikhúsið frumsýndi fyrir stuttu á Ísafirði nýja sýningu, Jólasveinar Grýlusynir. Bernd sýnir í Landnámssetrinu Pönnukakan hennar Grílu ásamt því að ferðast með hana fram að jólum. Ævintýrið um Augastein verður aftur á fjölunum hjá leikhópnum Á senunni en sýningar verða í Hafnafjarðarleikhúsinu. Svo mun nýtt jólaleikrit í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, Þú ert nú meiri jólasveinninn vera frumsýnt hjá LA 1. desember. Einnig er Möguleikhúsið í leikferð um norðurland með Smið jólasveinanna en sú sýning mun líka vera sýnd í Möguleikhúsinu við Hlemm.
Möguleikhúsið er líka með aðra jólasýningu í vetur, Hvar er Stekkjastaur? Stopp leikhópurinn sýnir Jólin hennar Jóru í leikskólum og grunnskólum. Einnig ætlar Kraðak að frumsýna 1. desember nýtt jólaleikrit í Skemmtihúsinu við Laufásveg sem heitir Lápur, Skrápur og jólaskapið. Einnig verður sýning á vegum brúðuleikhússins 10 fingur á ferðinni ásamt því að Leikhús í tösku vaknar af dvala og sýnir sína sýningu í leikskólum.
Í heildina verða sýndar yfir 100 sýningar af þessum verkum á einum mánuði.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2007 | 21:01
Fjölgun leikhúsgesta
Undanfarin ár hefur fjölgun leikhúsgesta verið mikil. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að aukningin er svo til eingöngu hjá sjálfstæðum atvinnuleikhópum. Síðastliðinn 3 ár hefur aukningin verið nærri 33%. Þetta verður að teljast frábær árangur. Aukið fjármagn til atvinnuleikhópa hefur ekki haldist í hendur við þessa aukningu áhorfenda heldur þvert á móti staðið í stað. Á meðan aðrar sviðslistastofnanir deila sín á milli 95% af öllu því fjármagni sem rennur til sviðslista hjá opinberum aðilum er aðsóknin að minnka eða í besta falli að standa í stað hjá þessum aðilum. Opinberir aðilar hafa samt verið að auka við fjármagnið til þessara stofnana. Þrátt fyrir þessa þróun er eins og erfiðlega gangi að koma þessum staðreyndum til réttra aðila. Það er spurning hvenær þessari misskiptingu verður mætt með leiðréttingu á útdeilingu fjármagns. Vaxtabroddurinn er í sjálfstæðum atvinnuleikhópum, þar er kvikan og nýsköpunin- um það eru 255 þúsund Íslendingar sammála á síðasta ári.
Lífstíll | Breytt 19.11.2007 kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 18:06
Tjarnarbíó blogg
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)